Banani

sunnudagur, maí 29, 2005

Stafir

hæhæ
Jæja það styttist alltaf í að ég fari til Kanada það eru 45 dagar þanngað til og 35 þanngað til að ég fer til svíþjóðar. Ég var hjá Hönnu syst í nótt var að passa hann Kristjón sæta og reyna að læra eitthvað í dk ég er bara svo vibbaléleg að það gekk ekki vel. En ég er að fara í próf á morgun, munnlegt :(

En já ég þarf eignlega að hætta að skrifa því að ég er svo svöng að ég er að deyja og svo er ég að fara á hundaæf með Elsu.

Samt ein pæling afhverju eru stafirnir á lykklaborðinu eins og þeir eru meina þúst afhverju eru þeir ekki í stafrófsröð eða bara einhvern vegin öðruvísi raðað? Ég var nebbla ýkt dugleg og tók alla stafina og bara alla takkana af lykklaborðinu og þreyf þá og hreinsaði undan þeim(það var sko ógislega mikið skítugt, gamalt súkkulaði og pop og eitthvað :/ ) svo þegar ég ætlaði að fara að setja allt á sinn stað þá mundi ég ekki hvar helmingurinn átti að vera, ýkt vesen sko en núna eru þeir allir komnir á sinn stað eða ég held það allvega.

En já er farin að fá mér að eta. bæbæ

6 Segðu...

Skrifa ummæli

<< Home