Banani

laugardagur, maí 07, 2005

Samræmdu og 3 sæti

Jæja þá nálgast samræmdu með ógnar hraða, byrja ekki á morgun heldur hinn :/ ég hef ekkert verið allt of dugleg að læra en vona að ég nái samt...

Í dag og á morgun er afmælis sýning hjá Cavalier deildinni og var ungum sýnendum boðið að koma og vera með. Ég tók að sjálfsögðu þátt enda er þetta mega gaman. Elsa Lúnd var sýningar dýrið mitt, við vorum samt ekkert duglegar að æfa fyrir þessa sýningu en náðum þó í þriðja sæti :D svo á morgun er ég að fara sýna Lúðvík/Lúlla og vonandi mun það ganga vel. Gyða er alveg komin á steipirinn þannig að ég gæti fengið SMS þá og þegar með upplysingum um að got væri byrjað. En nóg af PUG...

Í dag var hvolpa partý hjá Hönnu það var svaka stuð og ofsa gaman að sjá alla þessa hvolpa aftur, þeir komu reyndar ekki allir en samt.

En jæja verð að fara að læra...
bæbæ

2 Segðu...

Skrifa ummæli

<< Home