| Hæhæ þá er skólavikan byrjuð enn eina ferðina. Alveg ótrúlegt sko. Annars þá var ég að lesa í einhverju blaði um að sólarhringurinn hefði lengst eftir jarðskjálftana 26. des og var glöð með það að þeir hefðu nú gert það að verkum að ég gæti farið að sofa lengur og svona eins og gengur þá vantar alltaf nokkra klukku tíma í viðbót til að maður nái að klára allt sem þarf að klára. Síðan fór ég að kafa dýpra í textan og nei nei.... allar mínar vonir sem höfðu kviknað furðu fljótt urðu að engu. Sólarhringurinn lengdist um alveg næstum því 1 nanósek. Sem er svo lítil eining að hún skiftir ekki máli í lífi venjulegs fólks. Ég var að koma heim af æfingu áðan og á æfingunni vorum við með blöðrur og áttum að slá þær áfram. Blaðran mín hélt að hún væri gas blaðra og var þess vegna alltaf ótrúlega lengi í loftinu og fór bara upp og aftur á bak en ekki áfram, það var klikkað pirrandi... En ég þarf að fara að læra alveg hellingur að læra heima í dag eins og bara alltaf. Kv Jónína Sif og veitið athygli hversu margir hafa kíkt á síðuna síðan fyrir stuttu þegar þessi teljari var settur upp ;Þ |
Hæ þetta er heimasíðan eða blogg síðan mín, ekki alveg sú fysta þar sem ég er fekar nýjuna gjörn í þessum málum. En vonandi áttu eftir að hafa gaman af bullinu í mér og endilega látu mig vita hvernig þér líkar.
Flott að hafa allt á íslensku...
SvaraEyðaog btw þá var ég nr 120 inn á þessa síðu...
kv Bergur
En nanósekúndur eru stór tímaeining í heimi vísindanna og finnst mér asnalegt að vita þetta :S
SvaraEyðaen flott blogg
elvar
hey vó ú þarft að fara að gera svona flott við mína síðu;) En ég sá engann teljara..eða jú kannski
SvaraEyðaJá svona geta snillingarnir gert, ég er náttla mikill vísinda maður! eða kona...
SvaraEyðaTil Hamingju Bergur...
jú jú flott hjá litlu frænku, :)
SvaraEyðaþað þarf held ég ekkert að segja meira...
Bjarki
Hehe takk takk, er sjálf mjög stolt :Þ
SvaraEyða